Enn og aftur sama ruglið i loðnumælingum

Nú skal endurtekinn sami leikur og frá í fyrra og mönnum haldið í helgreipum fram á síðustu stundu um hvort mönnum þóknast að gefa út loðnukvóta. Í fréttum í gær heyrðist manni Sveinn Sveinbjörnsson vera búinn að afskrifa það að nokkuð væri til af loðnu, slík var neikvæðnin hjá honum og þá var hann varla komin á svæðið sem skipin voru að leita á.

 

Dælt úr nótinn

Fyrir mitt leiti var ég nú nokkuð bjartsýnn enda ekki mælst svona mikið af loðnu í haustleiðangri undanfarin haust, heil 270,000 tonn, síðan kemur bara sama tala núna í janúar kom mér og öllum á óvart.

En hvað um það það er mín skoðun og margra annarra að það sé ekki hægt að mæla þennan stofn það sýnir sagan okkur, mér er það svo minnistætt fyrir 3 eða 4 árum síðan mældust 30, 000 tonn að hausti en síðan allt í einu 800.000 tonn í janúar, og þegar leitað var skýringa var fátt um svör.

Nú ætti ráðherra sjávarútvegs að gefa leyfi til að starta vertíð með því að gefa út 150,000 tonna kvóta svo að hægt sé að byrja að frysta loðnu á Rússa markað. Norðmenn fara að byrja veiðar í Barentshafi og það er nauðsynlegt fyrir okkur að glata ekki mörkuðum sem þeir fara nú að koma inn á. Annars er okkar þjóð í svo góðum málum að við þurfum ekki á gjaldeyri að halda eða hvað.

Síðan er gott blogg hjá Kristni Péturssyni sem sýnir hvað menn vita lítið smellið á það http://kristinnp.blog.is/blog/kristinnp/ 

En svo aðeins af mínum ferðum erum nú á landleið með kolmuna sem við fengum suður af Færeyjum, fengum 2350 tonn í fimm hölum, mis löngum minnsta halið var 250 tonn en stærsta 500.

 

600 tonn


mbl.is Ekki loðnuveiðar að svo stöddu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7, jan 1992.

7,  jan 1992 fæddist drengur á sjúkrahúsinu í Neskaupstað, finnst mér eins og þetta hafi gerst í gær, en í dag er þessi drengur því 17 ára. Hann var skírður Sigþór Rögnvar í höfuð afa síns. Drengur þessi er sonur minn og hefur verið minn besti vinur og leikfélagi frá fæðingu. Nú er hann að verða fullorðinn og býr hjá systur sinni í Rvk. Hann stundar nám í tónlistarskóla FÍH og lærir slagverk.

Sigþór Rögnvar (Dengsi)


Gleðilegt nýtt ár.

Óska öllum bloggvinum og þeim sem lesa gleðilegs nýárs og gæfu á komandi áriKissing  Kveðja Grétar.

Óska öllum vinum, bloggvinum og ættingjum gleðilegrar hátíðar.

                                                                                                                                                                                                                                                                                                          

                                                                                 


Glæsilegur árangur Stefáns

Gaman að lesa grein um Stefán og Brondby í Mogganum í dag. Stefán er glæsilegur fulltrúi ungra fótboltadrengja sem hafa tekið íþróttina alvarlega og náð árangri eftir því. En það er gaman hvað margir góðir knattspyrnumenn hafa komið frá austurlandi og eru að spila með nokkuð stórum klúbbum í dag, Stefán hjá Brondby og Valur bróðir hans hjá Fylki, Eggert Gunnþór hjá Hearts Skotlandi eru héðan frá Eskifirði. Ívar Ingimarsson í Reading, er frá Stöðavarfirði, og Hjálmar Jónsson í Gautaborg er frá Egilstöðum. Ármann Smári Björnsson í Brann, er síðan Hornfirðingur. Ég er örugglega að gleyma einhverjum.
mbl.is „Stefnan að sjálfsögðu sett á meistaratitilinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göngutúr að vetri og fótbolti á eftir.

Getur ekki verið meira hressandi þegar leikurinn endar vel, Chealsea-Arsenal 1-2 og allir búnir að afskrifa Arsenal. Að þessu sinni var myndavélin tekin með svona bara að gamni til að sýna fjarsöddum hvernig umhorfs er, en er þetta ekki bara eins og þetta á að vera um vetur, held það, samt oft verið meir snjór hér á Eskifirð en nú er.

Vetur 2008 009

Þessi mynd var tekin í upphafi göngutúrs þegar búið var að moka sig út úr húsi.

Vetur 2008 012

Úr garðinum hjá Öddu Halldórs.

Vetur 2008 016

Mjóeyrin.

Vetur 2008 019

Hólmatindur í vetrarskrúða.


Auðlindin

Hvað skildi hafa komið fyrir þá hjá Rúv að setja fréttaþáttinn Auðlindina aftur á dagskrá, þáttinn sem svo margir hlustuðu á og söknuðu þegar hann var lagður niður. Kannski á að fara reyna koma því inn hjá fólki að það er til eitthvað annað en bankar og rugludallar til að fjalla um í fréttum. Þegar þessi þáttur var lagður niður voru margir hissa en ég er enn meir hissa að hann skuli vera kominn aftur á. Ekki veit ég hvers vegna, en það má kannski aðeins fjalla um það sem hefur verið okkar helsta atvinnugrein um árabil og skilað miklum tekjum inn í þjóðarbúið í gegnum tíðina þá illa sé fyrir okkur komið núna.

jon_kjartansson_i_heimahofn

 

Til gamans sett gömul mynd af J.K. sennilega tekin 1978-9 þegar hann var nýkominn á Eskifjörð, held að hann hafi verið grár í um 2 ár og síðan svartur. Síðan eftir endurbyggingu í Póllandi rauður.

7726c496e911bc22-vi

 


Dagar myrkurs og rjúpan.

Nú eru dagar myrkurs haldnir hér á austurlandi og er það bara ágætt allir geta fundið eitthvað sér til tilbreytingar í skammdeginu http://isl.east.is/Forsida/Atburdadagatal/DagarMyrkurs/ fór í fyrrakvöld í Randúlfssjóhús og hlustaði á skemmtilegar sögur af gömlum Eskfirðingum og hlustaði á tónlist.  Svo voru náttúrulega veitingar, lummur pönnukökur harðfiskur hákarl og íslenskt brennivín. Þetta var bara hin besta skemmtun og góð tilbreyting frá hinu týpíska sjónvarpsglápi. En í gærkvöldi horfði ég náttúrlega á sjónvarp þegar ungu drengirnir í Arsenal léku sér að liði Wigan og unnu 3-0.

Nú er rjúpnatíminn, og var stíft stundað um síðustu helgi, sem skilaði hinu versta hælsæri  en til huggunar slatta af rjúpu sem aðallega var veidd á Fljótsdalsheiði. Meiningin er að fara aftur um helgina ef veður leifir og reyna að fanga nokkrar í viðbót.

Rjúpa


Ósmekkleg hækkun á hitaveitu Eskfirðinga.

Nú liggur fyrir tillaga um 20% hækkun á heitu vatni til okkar íbúa hér á Eskifirði. Rökin eru illa haldbær að mé finnst. Rafmagn að hækka um 20 % og þá skal vatnið líka hækka, en mér hefur verið sagt að kostnaðarauki Fjarðabyggðar vegna þessarar hækkunar á rafmagni sé um 600 þúsund á ári en álögurnar sem leggja skal  bara á Eskfirðinga 12 miljónir. Ef satt reynist er þetta í hæsta máta mjög ósmekklegt, fólk var hvatt til að taka inn hitaveitu, og það gerðu flestir með mismiklum kostnaði, hef heyrt að margir sem þurftu að skipta um ofna í húsum sínum hafi þurft að greiða stórar upphæðir fyrir, jafnvel nokkur hundruð þúsund.  Veit að margt af eldra fólki er ekki glatt yfir þessum gjörningi og finnst vera komið aftan af því. Ekki veit ég frá hverjum þessi tillaga er komin sjálfsagt frá mannvirkjanefnd eða fjármálasnillingum bæjarins. Finnst þeir ættu að skoða þessi mál betur.

Ég ætlaði ekki að trúa þessu, en verð samt

Skil vel gremju Wengers, að vera með unninn leik í höndunum en gera síðan jafntefli við erkifjendurna. En hvað um það, lífið er ekki búið og Arsenal er með ungt og gott lið. Mér finnst tvö mörkin alveg á ábyrgð markmannsins. Það á ekki að vera hægt að skora af 40 m færi í deild eins og þessari þó það hafi nú komið fyrir áður. En Almunia var alltof framarlega þegar gamli Arsenal maðurinn Bentley skoraði. Síðan átti hann að halda boltanum þegar Jenas skoraði. Er sammála Wenger að auðvitað áttu þeir að halda boltanum í stöðunni 4-2 ekki halda áfram að sækja, held að þarna hafi vantað reynslu.

En það er auðvelt að sitja hér í brúnni á J.K. og gagnrýna, en ég er drullusvekktur verð bara að viðurkenna það. En það gleður mig samt að óvissuferðin í Síldarsmuguna gekk bara vonum framar. erum á landleið með nánast fullann bát eða 2200 tonn af fallegri síld. Það var ótrúlegt að sjá hvernig hún birtist og hvarf og þurfti af og til að leita af henni. En það er mikið hafsvæði og ég segi að það sé talsverð heppni að finna síldina á þessu svæði á þessum tíma, en aðeins voru 4 skip á svæðinu þegar mest var. Vorum mjög norðarlega á 71- 72 gráðu norður og við Norsku landhelgina i norðvestur frá Lofoten. Vorum af og til í línudansi svokölluðum en það er aldrei gaman þegar línan er Norsk. Smámunasemi þeirra er svo mikil eins og við höfum oft orðið vitni af samanber afrek þeirra síðustu daga þegar þeir hirtu 3 ísl ogh eitt færeyskt skip og sektuðu háum fjárhæðum. Held að hæsta sektin hafi verið 40 milj ísl kr. Hefði ekki áhuga á svoleiðis sekt á síðustu og verstu tímum. Erum nú á siglingu heim á leið í góðu veðri en til Eskifjarðar voru um 620 sml þegar við lögðum af stað sem er um 2 sólahringa sigling. En hvað um það, í kvöld áfram Ísland í landsleiknum við Íra.  

 

Blíða á siglingu   

 


mbl.is Köstuðum frá okkur sigri á barnalegan hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Grétar Rögnvarsson
 Grétar Rögnvarsson
skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU-111, frá Eskifirði

270 dagar til jóla

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband