Göngutúr að vetri og fótbolti á eftir.

Getur ekki verið meira hressandi þegar leikurinn endar vel, Chealsea-Arsenal 1-2 og allir búnir að afskrifa Arsenal. Að þessu sinni var myndavélin tekin með svona bara að gamni til að sýna fjarsöddum hvernig umhorfs er, en er þetta ekki bara eins og þetta á að vera um vetur, held það, samt oft verið meir snjór hér á Eskifirð en nú er.

Vetur 2008 009

Þessi mynd var tekin í upphafi göngutúrs þegar búið var að moka sig út úr húsi.

Vetur 2008 012

Úr garðinum hjá Öddu Halldórs.

Vetur 2008 016

Mjóeyrin.

Vetur 2008 019

Hólmatindur í vetrarskrúða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hvurslags er þetta eiginlega maður, af hverju er bíllinn eiginlega úti í svona hryssing:)......svo máttu ekki setja svona myndir á bloggið...það er ekki laust við að maður finni fyrir heimþrá...:)

Eddi Gjé. (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 12:41

2 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

Flottar myndir og já bara ágætt að Arsenal vann Ég væri til í brjálæðislegan mikinn snjó upp í Oddskði - þar er þetta bara eins og í eyðimörk en allt á kafi hér í bænum (sem er lika bara OK)

Bjarney Hallgrímsdóttir, 2.12.2008 kl. 07:44

3 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Eddi, það er ekki búið að koma opnaranum svo er bara ágætt að vakna við það að skafa bílinn. Heimþrá fer ekki ágætlega um þig.

Badda mín, já það var  bara ágætt að Arsenal vann, Liverpool- West Ham ? Þetta er bara fínt, eins og þetta á að vera.

Grétar Rögnvarsson, 2.12.2008 kl. 09:56

4 identicon

svona á þetta að vera á veturna...annað en hér sem ekki sést snókorn en kulinn er svo mikill að ég held að það fari að frjósa undan fólki:-)

Erna (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 12:59

5 identicon

Yndislegar myndir og setja allt af stað hjá mér.  Komin langt aftur í tímann.  Nú langar mig alveg ótrúlega mikið HEIM.  Þakka þér fyrir.

Bestu kveðjur austur

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 20:28

6 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

BLessaður gamli skólabróðir og takk fyrir að bjóða mér í hópinn

Jón Aðalsteinn Jónsson, 2.12.2008 kl. 22:15

7 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Já það er fallegt um að litast þessa dagana hér á Eski stelpur mínar, og auðvitað langar ykkur heim í sveitina.

Jón, auðvitað varð að bjóða þér í hópinn. Vantar þig bara á facebókina og fara að leita þar að fleiri skólafélogum, er búinn a finna tvo Reykhyltinga sem voru með okkur þar.

Grétar Rögnvarsson, 3.12.2008 kl. 12:29

8 Smámynd: Dunni

Glæsilegar myndir hjá þér félagi.  Tindurinn er alltaf flottur.  Og garðurinn hjá Öddu er eins og klipptur út úr amerísku jólakorti.

Annars er komin dágóður slatti af snjó hér á fjallinu hjá mér. Mokaði innkeyrsluna tvisvar á þriðjudag og tvisvar í gær.  

Dunni, 4.12.2008 kl. 16:36

9 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Segi eins og Unnur, það fera allt af stað hjá mér. Eins og venjulega á ég mjög auðvelt með að hverfa aftur í huganum og staðsetja mig "heima" með fjallið eina í augsýn. Finn lyktina og sé litina. Hitti ykkur jafnvel, Unnur, Grétar og Dunni. Ekki leiðinlegt.

Takk, Grétar, fyrir frábærar myndir!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.12.2008 kl. 00:30

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

... leiðrétting:  "... það fer allt..." o.s.frv.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.12.2008 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Grétar Rögnvarsson
 Grétar Rögnvarsson
skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU-111, frá Eskifirði

239 dagar til jóla

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 177248

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband