Íbúasamtök stofnuð á Eskifirði.

Í gærkvöldi voru stofnuð íbúasamtök á Eskifirð (Í.S.E.) stofnfélagar eru rúmlega 60 og á örugglega eftir að fjölga mikið. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn. Stofnfundurinn var góður og tóku nokkrir til máls og það er ýmislegt sem greinilega brennur á fólki. Þurfum að standa saman og vinna einnig með íbúasamtökum í öðrum bæjarkjörnum Fjarðabyggðar í vissum málum eins og læknamálinu. Það var ánægjuleg að sjá einn að bæjarfulltrúum sem við Eskfirðingar eigum í bæjarstjórn Fjarðabyggðar mæta á fundinn hefði verið skemmtilegar ef hinir tveir hefðu látið sjá sig líka.

Skora á íbúa á Eskifirði að skrá sig í samtökin þegar boð um það verður sent í hús eða búið að gera síðu um samtökin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Grétar.

Sammála þér  um að löngu tímabært var að stofna svona samtök. Sannfærð um að þetta verði  okkur til framdrátta.

En aðal ástæðan fyrir því að ég ákvað að gera athugasemd er það sem þú segir um þá bæjarfulltrúa sem ekki mættu.. Við skulum ekki endilega álíta sem svo að þau hafi ekki áhuga á þessu. Ýmsar ástæður geta verið fyrir  því að þau mæta ekki. Þetta segi ég af minni eigin reynslu. Fékk einu mjög bágt fyrir að hafa ekki mætt að fund sem ég nótabeinið ætlaði á. En í staðinn var ég með Frey á sjúkrahúsinu á Norðifirði eftir að hann hafði dottið mjög illa á hjóli rúmum  tveimum klukkutímum fyrir fund. Sú vera endtist í einn og hálfan sólarhring. Tek það fram að ég er ekki að afsaka neinn.

Rúna (IP-tala skráð) 16.1.2010 kl. 13:08

2 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Rétt hjá þér Rúna, veit ekki um ástæður fyrir því að þau mættu ekki geta örugglega verið haldbærar ástæður, en nauðsynlegt fyrir samtökin að hafa aðgang að bæjarfulltrúum úr okkar bæjarkjarna ef við ætlum að koma okkar málum á frmafæri. Það kemur fljótlega í ljós þegar farið verður að gera eitthvað hvernig verður að ná til þeirra.

Grétar Rögnvarsson, 18.1.2010 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Grétar Rögnvarsson
 Grétar Rögnvarsson
skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU-111, frá Eskifirði

271 dagur til jóla

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 177174

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband